Fotbolti.net
05.05.21 - 01:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Guðjón Pétur: Hjálpaði Binna ekki að Óskar sagði hann bestan

Binni Willums

Binni Willums

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður ÍBV og fyrrum leikmaður Vals og Breiðabliks, var á línunni í hlaðvarpsþættinum Steve Dagskrá í gær.

Þeir Andri Geir Gunnarsson og Vilhjálmur Freyr Hallsson, þáttarstjórnendur þáttarins, spurðu Gauja hvort það væri einhver einn leikmaður í Pepsi Max-deildinni sem hann væri spenntari fyrir en einhver annar.
„Binni er náttúrulega farinn út, það er ekki hægt að nefna hann. Hann var líka bestur í deildinni í fyrra," sagði Gaui með smá kaldhæðnistón.

„Já, fannst þér það," spurði Villi.

„Nei," sagði Gaui og hló. „En hins vegar er Binni frábær leikmaður en Óskar hjálpaði honum ekki með því að kalla hann bestan."

Það vakti athygli í fyrra þegar Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, sagði að Brynjólfur Andersen Willumsson væri besti leikmaður deildarinnar. Brynjólfur skrifaði undir hjá Kristiansund í vetur.

„Mér finnst hann mjög flottur Sveinn Margeir (Hauksson) í KA. Það er góður spilari. Ég sá þennan strák spila með Dalvík og sá að hann er hörkuspilari. Ég hef heyrt það frá mönnum fyrir norðan að þetta er góður leikmaður. Ég hef spilað við hann nokkrum sinnum, hann vonandi bætir sinn leik og fer frá þessu lengi."

„Brynjar Ingi (Bjarnason) er líka geggjaður en kannski búinn að sanna sig, hálfgrátlegt að hann hafi ekki verið seldur. Maður vonar að þeir komist í flotta klúbba. Þetta er ekkert of seint fyrir Binna, hann er ennþá ungur. Vonandi á hann frábært sumar núna og fer í eitthvað gott ævintýri."

„Óli Valur (Ómarsson) í Störnunni er einnig spennnandi,"
sagði Gaui.


Óli Valur

Sveinn Margeir Hauksson

Sveinn Margeir Hauksson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Brynjar Ingi Bjarnason

Brynjar Ingi Bjarnason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.