Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. maí 2021 18:21
Ívan Guðjón Baldursson
Hvíta-Rússland: BATE vann í undanúrslitum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Zhodino 1 - 1 BATE
0-1 J. Filipovic ('30)
1-1 D. Antilevski ('37)

Willum Þór Willumsson lék allan leikinn er BATE Borisov tryggði sér sæti í úrslitaleik hvítrússneska bikarsins í dag.

BATE heimsótti Zhodino í seinni viðureign liðanna í undanúrslitum eftir 4-1 sigur á heimavelli.

Staðan var jöfn eftir jafnan fyrri hálfleik en heimamenn í Zhodino tóku öll völd á vellinum eftir leikhlé. Þeim tókst þó ekki að skora og fer BATE því þægilega í úrslit eftir samanlagðan 5-2 sigur.

BATE mætir Isloch í úrslitaleiknum. Isloch sló stórlið Shakhtar Soligorsk úr leik í undanúrslitum.
Athugasemdir
banner
banner