Mikel Arteta þjálfari Arsenal var himinlifandi eftir sigur gegn Atlético Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Arsenal vann 1-0 eftir að hafa gert 1-1 jafntefli í fyrri leiknum í Madríd. Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins á 44. mínútu.
„Þetta er stórkostlegt kvöld fyrir alla innan félagsins, tilfinningin er ótrúleg. Við erum svo stoltir eftir þennan sigur. Stuðningsmennirnir voru magnaðir, þeir biðu eftir okkur fyrir leik og fylltu okkur af orku og ástríðu. Þetta er sögulegt kvöld fyrir okkur sem félag eftir mörg erfið ár," sagði Arteta.
„Samheldnin í liðinu er frábær, það var mjög erfitt fyrir mig að breyta svona miklu í byrjunarliðinu á milli leikja. Þegar ég sagði við strákana að ég ætlaði að breyta byrjunarliðinu þá brugðust þeir mjög vel við og svöruðu að þeir væru tilbúnir til að spila þegar ég þarf á þeim að halda."
Arsenal er á frábærum stað á viðkvæmum tímapunkti tímabilsins eftir að hafa tapað úrslitaleik deildabikarsins og gegn Championship-liði Southampton í 8-liða úrslitum FA bikarsins fyrr í vor. Arsenal tapaði einnig titilslagnum gegn Manchester City en virðist vera búið að finna aftur sama gír og fyrir áramót þegar liðið var óstöðvandi. Núna er Arsenal komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar auk þess að vera með forskot í titilbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.
„Við þurfum alltaf að vera 100% tilbúnir í hvaða áskorun sem er. Fótbolti er skrýtin íþrótt þar sem hlutir geta breyst hratt. Það mikilvæga er að halda alltaf áfram að reyna að bæta sig. Ég er heppinn að vera með frábæran leikmannahóp hérna svo breiddin er mikil. Það eru alltaf mjög góðir leikmenn sem þurfa að sætta sig við að sitja á bekknum en þeir vita að allir munu fá sín tækifæri til að sanna sig."
Arteta hrósaði sóknarmönnunum Bukayo Saka og Viktor Gyökeres fyrir frábæra frammistöðu og viðurkenndi að varnarleikurinn sé sterkasta vopnið í vopnabúri Arsenal þetta tímabilið.
05.05.2026 20:54
Meistaradeildin: Arsenal í úrslitaleikinn eftir 20 ára bið



