Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deild kvenna: Þróttur hafði betur í Úlfarsárdal
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 0 - 3 Þróttur R.
0-1 Sigríður Th. Guðmundsdóttir ('33)
0-2 Jelena Tinna Kujundzic ('61)
0-3 Þórdís Nanna Ágústsdóttir ('90)

Lestu um leikinn: Fram 0 -  3 Þróttur R.

Fram tók á móti Þrótti R. í eina leik dagsins í Bestu deild kvenna og náði Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir forystunni í bragðdaufum fyrri hálfleik.

Af leikmönnunum innan vítateigs var Sigríður fljótust að hugsa og fylgdi marktilraun Unnar Dóru Bergsdóttur eftir með marki.

Þróttur hélt boltanum vel í fyrri hálfleik en náði ekki að skapa mörg færi. Heimakonur í liði Fram mættu til leiks af miklum krafti í síðari hálfleik en tókst ekki að gera jöfnunarmark. Þess í staðinn fengu þær mark í bakið úr föstu leikatriði.

Jelena Tinna Kujundzic skoraði þá með góðum skalla eftir aukaspyrnu.

Fram tókst ekki að minnka muninn á lokakafla leiksins og skoraði Þórdís Nanna Ágústsdóttir þriðja og síðasta markið á 90. mínútu, svo lokatölur urðu 0-3.

Þróttur er með sex stig eftir þrjár fyrstu umferðir tímabilsins og situr Fram eftir á botninum án stiga.
Slapp
banner
banner