Fotbolti.net
05.05.26 - 21:42
Ívan Guðjón Baldursson
ICE

Einkunnir Arsenal og Atlético: Declan Rice bestur

Einkunnir Arsenal og Atlético: Declan Rice bestur
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir eftir sigur Arsenal gegn Atlético Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Arsenal var sterkara liðið og vann 1-0 til að tryggja sér þátttökurétt í úrslitaleik keppninnar í fyrsta sinn í 20 ár. Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins og fær 8 í einkunn, en Declan Rice var besti leikmaður vallarins.

Rice fær 9 fyrir sinn þátt í sigrinum frækna og fá samherjar hans ýmist 7 eða 8 í einkunn.

Í liði Atlético fá hins vegar allir sömu einkunn, 6. Enginn þótti afburða góður eða lélegur. Giuliano Simeone komst næst því að skora en klúðraði eftir mikla truflun frá Gabriel Magalhaes og vildi fá dæmda vítaspyrnu, en fékk hornspyrnu í staðinn.

Arsenal: Raya (8), White (7), Saliba (8), Gabriel (8), Calafiori (7), Lewis-Skelly (7), Rice (9), Eze (7), Saka (8), Gyokeres (8), Trossard (7)
Varamenn: Madueke (6), Hincapie (7), Odegaard (6), Zubimendi (6), Martinelli (6)

Atletico: Oblak (6), Pubill (6), Hancko (6), Le Normand (6), Ruggeri (6), Simeone (6), Koke (6), Llorente (6), Lookman (6), Alvarez (6), Griezmann (6)
Varamenn: Sorloth (6), Molina (6), Cardoso (6), Baena (6), Almada (6)

Meistaradeildin: Arsenal í úrslitaleikinn eftir 20 ára bið
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Arsenal í úrslitaleikinn eftir 20 ára bið

Einkunnir Arsenal og Atlético: Declan Rice bestur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.