Fotbolti.net
05.05.26 - 13:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrirliði Þórs/KA bíður eftir því að komast í myndatöku

Fyrirliði Þórs/KA bíður eftir því að komast í myndatöku
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Hulda Björg Hannesdóttir (2000), fyrirliði Þórs/KA, meiddist undir lok leiks gegn Grindavík/Njarðvík í Njarðvík á fimmtudagskvöld.

Hún er á hækjum sem stendur og bíður eftir tíma í segulómskoðun vegna hnémeiðsla.
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 2 - 1 Þór/KA
„Það er óvíst hvenær hún kemst í tékk, við sendum inn beiðni í gær eftir frídagana. Vonandi kemst hún að sem fyrst," segir Aðalsteinn Jóhann Friðriksson - Alli Jói - sem er þjálfari Þórs/KA.

Endirinn á leiknum var erfiður fyrir Þór/KA því skömmu eftir meiðslin skoruðu heimakonur sigurmarkið, 2-1 urðu lokatölur. Næsti leikur Þórs/KA verður gegn Stjörnunni á heimavelli á morgun. Sá leikur hefst 17:00.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.