Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
„Af því enginn þekkir nafnið þá veljið þið hann ekki mann leiksins”
   þri 05. maí 2026 22:21
Snæbjört Pálsdóttir
Sigríður Theódóra: „Það var aldrei spurning um annað en að vera þar áfram“
Kvenaboltinn
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir skoraði sitt annað mark í sumar.
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir skoraði sitt annað mark í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir skoraði sitt annað mark í sumar þegar Þróttur vann sannfærandi 3-0 sigur á Fram á Lambhagavelli í dag.

Hún var ánægð með úrslitin eftir erfiðan leik.

„Auðvitað bara mjög gott að ná í þrjú stig hérna. Þetta var rosalega erfiður leikur á móti bara góðu liði og við áttum í erfiðleikum mjög lengi. Það er bara gott að ná í þessi þrjú stig.“


Lestu um leikinn: Fram 0 -  3 Þróttur R.

Sigríður er komin vel af stað í sumar og hefur nú skorað í tveimur leikjum í röð. Hún skrifaði nýverið undir nýjan samning við Þrótt og segir ákvörðunina hafa verið augljósa.

„Já það er bara æðislegt að vera í Laugardalnum. Það var aldrei spurning um annað en að vera þar áfram, þannig mér líður mjög vel.“

Hún viðurkennir að stöðugleiki hafi verið áskorun en vonast til að hafa fundið taktinn.

„Það setur það auðvitað vel en maður þarf bara að halda áfram og reyna að halda stöðugleika. Það er eitthvað sem mig hefur vantað í svolítið langan tíma. Ég hef ekkert beint verið að finna stöðugleikann þannig að vonandi er ég bara byrjuð að finna hann.“

Markmiðin eru þó einföld.

„Svo lengi sem ég er að hjálpa liðinu að vinna þá er ég bara mjög ánægð.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner