Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. júní 2019 09:35
Elvar Geir Magnússon
Væri byrjunarlið Liverpool svona ef Maddison og De Ligt koma?
Daily Mail setti saman mögulegt byrjunarlið Liverpool fyrir næsta tímabil ef þessir tveir leikmenn mæta á Anfield.
Daily Mail setti saman mögulegt byrjunarlið Liverpool fyrir næsta tímabil ef þessir tveir leikmenn mæta á Anfield.
Mynd: Daily Mail
Jurgen Klopp vildi lítið gefa upp um sumarmarkaðinn hjá Liverpool þegar fjölmiðlar ræddu við hann eftir Meistaradeildarsigurinn gegn Tottenham síðasta laugardag.

Hann sagði að það væri alltaf að verða erfiðara að gera liðið betra og það væru auðvitað jákvæðar fréttir. En það ætti ekki að fá leikmenn bara til að gera fólk spennt, hans vinna væri að bæta liðið.

„Það er gott jafnvægi í liðinu. Okkar áætlanir eru allavega ekki fyrir almenning. Það er þannig. Augu okkar eru alltaf opin," sagði Klopp.

Klopp hefur náð að byggja upp magnað lið hjá Liverpool og samheldnin er augljóslega mikil. Stuðningsmenn vilja alltaf sjá nýja leikmenn keypta en það verður að passa upp á að styrkleikar liðsins haldi sér.

Klopp hefur sýnt það ár markaðnum að hann er tilbúinn að borga háar fjárhæðir fyrir réttu leikmennina.

Í slúðurpakkanum í morgun voru James Maddison og Matthijs de Ligt orðaðir við Liverpool. Sá fyrrnefndi hefur leikið gríðarlega vel fyrir Leicester síðan hann kom til félagsins frá Norwich fyrir ári síðan.

Ef De Ligt kemur frá Ajax gæti varnarlína Liverpool fyrir næsta áratug verið klár.

Daily Mail setti saman mögulegt byrjunarlið Liverpool fyrir næsta tímabil ef þessir tveir leikmenn mæta á Anfield.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner