Fotbolti.net
20.09.26 - 19:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Linta: Mun þjást í kvöld og kannski á morgun

Auglýsing
Linta: Mun þjást í kvöld og kannski á morgun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV gerði jafntefli gegn Val í kvöld en Valsmenn jöfnuðu í blálokin. Fótbolti.net ræddi við Aleksandar Linta, þjálfara ÍBV, eftir leikinn.
„Ég er svekktur fyrir hönd strákana. Þessi sigur hefði haft mikla þýðingu fyrir þá. Mér fannst þeir standa sig nokkuð vel og áttu ekki skilið að tapa," sagði Linta.

„Fótbolti er einfaldur, þú þarft að skora og fá ekki á þig mörk. Við náðum ekki í úrslit en ég get ekki sagt mikið neikvætt um leikmennina. Þeir reyndu og sköpuðu færi, það er ekki hægt að nýta öll færin. Orkan og andinn var góður en Valur er gott lið og það er ekki auðvelt að spila á móti þeim."

Linta var spurður út í fyrirkomulagið með tvískiptingu deildarinnar. ÍBV er á botninum, fjórum stigum frá KA, sem er í öruggu sæti.

„Fyrir mér er þetta eins. Eina sem ég er ósattur við er að við erum ekki með nógu mörg stig. Við höfum átt svona leiki þar sem við erum betri aðilinn en fáum ekkert út úr honum. Ég mun þjást í kvöld og kannski á morgun. Þetta er ekki búið," sagði Linta.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Valur24-331
2Stjarnan24-931
3FH24-627
4KA24-1323
5Þór24-3421
6ÍBV24-1519
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.