20.09.26 - 19:35
Sverrir Örn Einarsson
Rúnar Ætlum ekkert að slaka á
Auglýsing

Rúnar Kristinsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram mistókst að koma sér í annað sæti Bestu deildarinnar og uppfyrir KR er liðið mætti Keflavík í hörkuleik suður með sjó í dag. Lokatölur 2-2 og var Rúnar Kristinsson þjálfari Fram mættur til viðtals við Fótbolta.net í leikslok. Um leikinn sagði Rúnar.
Lestu um leikinn: Keflavík 2 - 2 Fram
„Þetta var örugglega skemmtilegur leikur fyrir áhorfendur. Fullt af færum og Viktor alveg frábær í markinu hjá okkur og bjargaði okkur trekk í trekk og að sama skapi varði Ásgeir nokkrum sinnum hjá þeim. Við brennum af og skjótum yfir og framhjá úr dauðafærum og nýtum ekki okkar sénsa.“
Fram tókst vel til oft að skapa sér ágætar stöður og fékk til að mynda mýmargar hornspyrnur sem ekki nýttust. Rúnar var skiljanlega ekki of ánægður með laka nýtingu.
„Ég held að við höfum fengið sextán hornspyrnur í þessum leik og eigum varla færi úr þeim. Erum varla fyrstir á boltann í eitt einasta skipti svo það vantaði smá kraft í okkur í vítateignum en úrslitin sennilega bara sanngjörn en fyrir okkur gerir þetta ekki mikið.“
Fram á í harðri baráttu við KR um annað sæti deildarinnar sem gefur sæti í annari umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Nokkuð sem Fram hlýtur að stefna að.
„Við erum alveg grjótharðir á því að við ætlum að berjast um þetta annað sæti. Það er að miklu að keppa og við ætlum ekkert að slaka á þó við séum kannski ekki hlynntir þessu fyrirkomulagi. Við erum að æfa eins og menn og munum leggja hart að okkur að mæta sterkir til leiks næst. Þó menn fái vikufrí núna þá komum við tala baka og æfum í tvær góðar vikur og reynum að undirbúa okkur sem best fyrir næsta leik.“
Sagði Rúnar og vísar þar í þriggja vikna landsleikjahlé sem framundan er. En hvernig ætlar Rúnar sjálfur að nýta tímann í því hléi?
„Ég ætla að hjálpa tengdadóttur minni svo að sonur minn geti tekið þátt í þessu landsliðsverkefni. Þannig að ég er bara að fara að hitta barnabörnin mín og sjá um þau í einhverja fimm til sex daga til þess að sonur minn geti notið þess að vera með landsliðinu.“
Sagði Rúnar en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.