PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 23:52
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Álftanes áfram með fullt hús stiga
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Úlfarnir 1 - 2 Álftanes
0-1 Bessi Thor Jónsson ('44 )
1-1 Kajus Pauzuolis ('74 )
1-2 Pálmar Sveinsson ('87 )

Úlfarnir tóku á móti Álftanesi í eina leik kvöldsins í 4. deildinni og náði Bessi Thor Jónsson forystunni fyrir gestina skömmu fyrir leikhlé.

Kajus Pauzuolis jafnaði metin í síðari hálfleik og virtust Úlfarnir ætla að verða fyrsta liðið til að hirða stig af Álftanesi á deildartímabilinu allt þar til á 87. mínútu, þegar Pálmar Sveinsson skarst í leikinn.

Pálmar skoraði það sem reyndist sigurmark Álftnesinga svo lokatölur urðu 1-2.

Álftanes er áfram með fullt hús stiga, 15 stig eftir 5 umferðir.

Úlfarnir eiga 7 stig.
Slapp
banner