Fotbolti.net
27.07.26 - 21:37
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea fær grænt ljós frá Henderson og Welbeck

Danny Welbeck

Danny Welbeck

Canon

Mynd: EPA

Reynsluboltarnir Danny Welbeck og Jordan Henderson vilja báðir ganga í raðir Chelsea í þessum glugga.
Chelsea leiðir baráttuna um Henderson
TENGT EFNI

Chelsea leiðir baráttuna um Henderson

BBC greindi frá því í dag að Chelsea hefði augastað á hinum 35 ára gamla Welbeck, sem raðaði inn mörkum fyrir Brighton á síðasta tímabili.

Chelsea er þegar í viðræðum við Brighton um framherjann. Félagið vill bæta nokkrum reynsluboltum í leikmannahópinn til að leiðbeina þeim fjölmörgu ungu leikmönnum sem þar eru fyrir.

Nokkrum klukkustundum síðar greindi Fabrizio Romano frá því að Chelsea væri einnig að reyna að fá Henderson frá Brentford. Henderson er með samkomulag við félagið um að mega fara án greiðslu.

Hinn 36 ára gamli miðjumaður kom við sögu í 32 leikjum með Brentford í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Báðir búa yfir gríðarlegri reynslu úr ensku úrvalsdeildinni. Henderson lék lengi með Liverpool, bar fyrirliðabandið og var í lykilhlutverki á einu farsælasta tímabili í sögu félagsins. Hann hefur einnig leikið með Al Ettifaq í Sádi-Arabíu og Ajax í Hollandi.

Welbeck hefur leikið nær allan sinn feril í ensku úrvalsdeildinni frá árinu 2008. Hann er uppalinn hjá Manchester United en hefur einnig leikið með Arsenal, Sunderland og Watford auk þess að hafa farið á láni til Preston.

Welbeck hefur skorað 88 mörk í deildarkeppni fyrir þessi félög. Hann setti persónulegt met á síðasta tímabili þegar hann skoraði þrettán mörk.

Romano segir Henderson og Welbeck báða opna fyrir því að ganga til liðs við Chelsea. Samningskjör ættu ekki að standa í vegi fyrir félagaskiptunum.
Jordan Henderson vill fara til Chelsea

Jordan Henderson vill fara til Chelsea

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.