Fotbolti.net
27.07.26 - 21:19
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Markalaust í Akureyrarslagnum

Besta deildin: Markalaust í Akureyrarslagnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA 0 - 0 Þór
Lestu um leikinn
Nágrannarnir í KA og Þór gerðu markalaust jafntefli í hörkuleik í 16. umferð Bestu deildar karla á Greifavellinum í kvöld.

Það sauð upp úr þegar liðin mættust fyrr á tímabilinu í leik sem einkenndist af látum og fjölda aukaspyrna. KA hafði þá betur, 1-0, eftir vítaspyrnumark Hallgríms Mars Steingrímssonar undir lokin.

Ný stúka KA var vígð fyrir leikinn og var þétt setið þegar flautað var til leiks. Heimamenn byrjuðu mun betur og réðu ferðinni lengst af í fyrri hálfleiknum.

Það vantaði þó herslumuninn framan af. KA-menn fóru að skapa sér hættulegri færi þegar leið að hálfleik. Jakob Héðinn Róbertsson fann Hallgrím Mar sem lagði boltann aftur á Jakob en Aron Birkir Stefánsson varði skot hans.

Nokkrum mínútum síðar lét nafni hans, Jakob Snær Árnason, vaða fyrir utan vítateiginn en boltinn small í þverslánni.

Mörkin létu á sér standa en spennan var mikil. Lítið var um færi framan af síðari hálfleik en Þórsarar sóttu í sig veðrið þegar leið á og komst Atli Sigurjónsson í ágætis stöðu en fór illa með hana og þá kom Valdimar Logi Sævarsson með hörku innkomu af bekknum.

Hvorugu liðinu tókst að brjóta ísinn og markalaust jafntefli varð niðurstaðan í þessum erkifjendaslag. KA er í níunda sæti með 15 stig en Þór situr á botninum með 12 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram16+1334
4Breiðablik16+929
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍA16-818
8ÍBV16-816
9Stjarnan16-1215
10KA15-814
11FH16-1113
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.