PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
„Var að reka á eftir hlutum sem hún á ekkert að vera að reka á eftir“
Thelma eftir fyrsta landsliðsmarkið: Ég er smá fúl samt
Talar um „ógeðslegan leik" - Þarf betri ramma um nýju reglurnar
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
Sævar Atli ræðir brottrekstur Freys - „Fengum ekki að kveðja hann“
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
   fös 05. júní 2026 22:02
Viktor Ingi Valgarðsson
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Lengjudeildin
Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK
Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eitt af leikjum kvöldsins var leikur HK og Aftureldingar. Leikurinn var hluti af 8.umferð Lengjudeildarinnar. Ljóst var fyrir leik að um hörkuleik væri að ræða en HK sigraði 2-1 í æsispennandi leik í Kórnum.

Fimmti sigur HK-inga á tímabilinu niðurstaðan og allir hafa þeir komið á heimavelli HK í Kórnum.


Lestu um leikinn: HK 2 -  1 Afturelding

„Var ekkert eðlilega ánægður með strákana, hrikalega stoltur af þeim. Öll þessi gremja eftir síðasta leik, þar sem tölfræðin sýndi að við vorum betri en töpuðum samt 4-1. Við náðum að transfera þá gremju inn í þennan leik, mér fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið í dag."

Þó að gengi HK hefur verið upp og niður hingað til hafa þeir unnið alla heimaleikina sína í Lengjudeildinni. Þetta var sá fimmti og gegn ógnarsterku liði Aftureldingar.

„Það er bara frábært, lykill af því að ef þú ætlar að vera í topp baráttu þá þarftu að vinna heimaleikina."

Leikmenn HK skiluðu flest allir mjög góðu dagsverki en undirritaður valdi markvörð HK - Ólaf Örn Ásgeirsson mann leiksins. „Virkilega frábær, hann gerir aulaleg mistök í síðasta leik en þetta sýnir hvernig karakter hann er, vildi koma tvíefldur tilbaka og gerir það ásamt fleirum. HK-liðið var bara frábært í dag."

Þegar rétt tæplega tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fékk Haukur Leifur Eiríksson að lýta beint rautt spjald. „Ég sé þetta ekki nægilega vel, en sé að Doddi (Dómarinn í kvöld) var mjög nálægt þessu. Ef að honum fannst þetta rautt þá er það bara rautt spjald."

Næsti leikur hjá HK er gegn Þrótti R. í Laugardalnum.

„Allir sigrar þeir næra, það er bara þannig. Fáum loksins viku milli leikja þannig það er smá "breather", búið að vera rosalega mikil meiðsli og leikmenn að detta út. Fólk hefur talað um óstöðugleika í sumar og ég er sammála því. Það er mjög einföld útskýring afhverju það er. Við höfum ekki byrjað tvo leiki eins í allt sumar, það segir ýmislegt."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan

 


Slapp
banner
banner