PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraká
„Mjög stolt af henni að vera komin alla leið hingað"
Eimskip
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ása á æfingu með landsliðinu.
Ása á æfingu með landsliðinu.
Mynd: KSÍ - Arnar Laufdal
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir er í landsliðshópi Íslands í fyrsta sinn núna þegar stelpurnar okkar mæta Úkraínu á morgun í mikilvægum leik í undankeppni HM.

Telma Ívarsdóttir, markvörður liðsins, þekkir Ásu vel úr Breiðabliki og er ánægð með að sjá hana í hópnum.

„Það er geggjað," sagði Telma um hvernig það væri að fá Ásu inn í hópinn. „Hún hefur staðið sig ógeðslega vel á æfingum og ég er mjög stolt af henni að vera komin alla leið hingað. Þetta er draumurinn hennar og ég er virkilega stolt af henni."

„Hún hefur staðið sig ekkert eðlilega vel í Bestu deildinni og mér finnst hún eiga þetta fyllilega skilið."

Sá maður þetta ekki gerast snemma með hana?

„Jú, hún hefur alltaf verið ógeðslega góður leikmaður. Að hafa spilað með henni í mörg ár og séð hana vaxa og þroskast er bara geggjað. Mér finnst hún geggjaður leikmaður," sagði Telma.

Getur leyst margar stöður
Ása er virkilega hæfileikaríkur leikmaður sem getur leyst margar stöður framarlega á vellinum. Hún er kannski helst sóknarsinnaður miðjumaður en hefur verið að spila sem fremsti maður Blika í sumar og leyst það verkefni vel.

„Mér finnst það bara gaman," sagði Ása við Fótbolta.net um hlutverk sitt.

„Í þessu kerfi sem við erum að spila er ég ekki mikill 'target striker'. Við erum mjög hreyfanlegar þarna og þetta hentar mér fínt."

Er þetta staða sem þú ert að horfa í til framtiðar?

„Ég veit það ekki alveg. Ég er bara ánægð ef ég fæ að spila."
Slapp
banner