PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 12:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segja að Olise sé leikmaðurinn sem Perez sé að tala um
Mynd: EPA
Joao Neves er einn besti miðjumaður heims.
Joao Neves er einn besti miðjumaður heims.
Mynd: EPA
Samkvæmt heimildum Telegraph er Michael Olise (2001), vængmaður Bayern München, sé leikmaðurinn sem Florentino Perez, sitjandi forseti Real Madrid, lofaði að fá til félagsins ef hann yrði endurkjörinn. Perez lofaði að kaupa leikmann sem yrði sá dýrasti í sögu spænska stórliðsins.

Hann sagði að hann myndi leggja fram tilboð upp á að lágmarki 150 milljónir evra fyrir ónefndan leikmann.

Perez reyndar tók fram í ræðu sinni um skotmarkið að þetta væri ekki leikmaður í ensku úrvalsdeildinni og tók sérstaklega að þetta væri ekki Erling Haaland, Jeremy Doku, Harry Kane eða Michael Olise. Þrátt fyrir þau ummæli fjallar Telegraph um að leikmaðurinn sem um ræðir sé Olise.

Olise er sagður efstur á óskalista Perez en nafn Joao Neves, miðjumanns PSG, hefur einnig verið nefnt.

Jose Mourinho verður stjóri Real ef Perez verður endurkjörinn og Mourinho er mjög hrifinn af Olise.

Bayern München vill ekki missa algjöran lykilmann úr sínum röðum. Frakkinn er talinn verðmætasta eign Bayern og er hann samningsbundinn til 2029.
Slapp
banner
banner