PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
„Þegar ég kom hingað gat félagið ekki borgað laun"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það styttist í forsetakosningar hjá Real Madrid og hafa frambjóðendurnir verið duglegir að ræða við fjölmiðla síðustu daga.

Florentino Pérez er talinn sigurstranglegri heldur en andstæðingur hans Enrique Riquelme og hafa báðir frambjóðendurnir gefið ýmis loforð. Riquelme talaði um að ætla að krækja í Rodri og Erling Haaland, tvo lykilmenn Manchester City, og heimsklassa þjálfara.

Rodri neitaði að tjá sig um framtíðina þegar hann var spurður út í Real Madrid á dögunum. Hann er einbeittur að HM með Spáni og hugsar um framtíðina eftir mótið.

Allir í kringum Haaland harðneituðu fyrir þessar fregnir og hótaði Man City að hefja lögsókn gegn Riquelme.

„Það neituðu allir í kringum Haaland fyrir þetta. Umboðsmaðurinn hans Haaland, faðir hans Haaland, félagið hans Haaland. Enginn kannaðist við þetta. Þetta var bara blekking," sagði Pérez í gær.

„Real Madrid er virði 10 milljarða evra í dag. Þegar ég kom til félagsins gat það ekki einu sinni staðið undir launakostnaði hálfs leikmannahópsins.

„Allir topp leikmenn vilja spila fyrir Real Madrid og ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni. José Mourinho er maðurinn sem gerði okkur samkeppnishæfa á ný þegar hann tók fyrst við stjórnartaumunum og ég trúi að hann geti gert það aftur. Hann bjó til andann sem gerði okkur kleift að vinna Meistaradeildina sex sinnum á tíu árum."


   05.06.2026 07:30
Ætlar að kaupa dýrasta leikmann í sögu Real Madrid

Slapp
banner