05.07.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leeds fær framherja frá Barcelona (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leeds er búið að klófesta framherjann Rafa Mujica frá Barcelona. Hann gerir þriggja ára samning við Leeds og mun fyrst um sinn fara í U23 lið félagsins.
Þessi tvítugi leikmaður er fimmti leikmaðurinn sem gengur í raðir Leeds í sumar.
Leeds er búið að fá Helder Costa frá Úlfunum, Jack Harrison frá Manchester City og Ben White frá Brighton. Þessir leikmenn komu á láni. Þá kom Liam McCarron, ungur leikmaður Carlisle United, einnig.
Mujica skorðai sjö mörk í 33 leikjum fyrir B-lið Barcelona á siðasta tímabili.
Leeds var nálægt því að komast upp í ensku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð, en félagið tapaði í umspilinu gegn Derby. Marcelo Bielsa verður áfram með Leeds á næstu leiktíð.