Fotbolti.net
05.07.22 - 22:53
Brynjar Óli Ágústsson

Ásgeir Börkur: Hvort við ætluðum ekki að drullast til að skora þriðja markið

Auglýsing
<b>Ásgeir Börkur Ásgeirsson, leikmaður Fylkis</b>

Ásgeir Börkur Ásgeirsson, leikmaður Fylkis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Við mættum almennilega til leiks og gerðum þetta vel,'' segir Ásgeir Börkur Ásgeirsson, leikmaður Fylkis, eftir 0-3 sigur gegn Þróttur Vogum í Lengjudeildinni.

„Það kom aðeins kafli í byrjun seinni hálfleiks þeir voru öflugir, en svona heilt yfir fannst mér við vera með yfirtökin allan tímann.''

„Ég viðurkenni það alveg að það kom sú hugsun í hausinn á mér í stöðunni 0-2  hvort við ætluðum ekki að drullast til að skora þriðja markið og það koma loksins og frábært mark hjá Gauta,''

Fylkir liggja í 2. sæti í Lengjudeildinni eftir þennan leik. 

„Mér finnst margt sem má bæta, við höfum verið á smá leiðinlegum kafla núna frá Selfoss leiknum. Þetta er barátta og allir að vinna alla, við þrufum bara sjá til þess að við náum inn sigrum hér og þar og þá held ég að við verðum í góðum málum.''

Hægt er að hrofa á viðtalið í heildi sinni fyrir ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.