Fotbolti.net
27.09.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Skaut á forvera sinn - „Það var ekkert plan"

Jorge Jesus

Jorge Jesus

Canon

Mynd: EPA

Portúgal vann Noreg 2-1 í Þjóðadeildinni í kvöld. Erling Haaland skoraði mark Noregs eftir að Diogo Costa varði aukaspyrnu frá Martin Ödegaard út í teiginn.

Jorge Jesus, landsliðsþjálfari Portúgals, skaut á Roberto Martínez, fyrrum landsliðsþjálfara Portúgals, þegar hann var spurður út í föstu leikatriðin.
„Leikmennirnir eru að trúa meira og meira á varnarleikinn og við erum að bæta okkur. Við erum enn langt á eftir sóknarlega," sagði Jesus.

„Við höfum ekki unnið vel í föstum leikatriðum. Það er engin samvinna, ég segi þeim að gera það sem þeir gerðu áður. En það er eins og það hafi ekki verið neitt plan."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.