Fotbolti.net
27.09.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Klopp er ekki töframaður"

„Klopp er ekki töframaður"
Canon

Mynd: EPA

Þýskaland hefur nælt í eitt stig úr fyrstu tveimur leikjunum undir stjórn Jurgen Klopp. Liðið tapaði gegn Grikklandi í kvöld eftir jafntefli gegn Hollandi á dögunum.

Bastian Schweinsteiger, fyrrum landsliðsmaður Þýskalands, segir að liðið sé langt frá þeim stað sem liðið var á árum áður.
„Við erum ekki topplið lengur, við erum miðlungslið. Okkur vantar leikmenn sem gera gæfumuninn. Grikkland er með þá í Karetsas, Tzolis og Pavlidis. Klopp er ekki töframaður. Þetta er erfiðisvinna," sagði Schweinsteiger.

Schweinsteiger var hluti af þýska liðinu sem vann HM 2014 og hafnaði í þriðja sæti í tvígang.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.