Enski úrvalsdeildarleikmaðurinn var handtekinn í gær, grunaður um að hafa nauðgað konu, er laus gegn tryggingu á meðan málið er í rannsókn en lögreglan í Lundúnum greinir nú frá því að hann sé grunaður um að hafa nauðgað annarri konu í tvígang.
Leikmaðurinn, sem er 29 ára gamall, var handtekinn í gærmorgun að heimili sínu í Barnet eftir að kona sakaði manninn um að hafa nauðgað sér, en það atvik átti sér stað í síðasta mánuði.
Umræddur maður er þekktur landsliðsmaður og á að spila með þjóð sinni á HM í Katar síðar á þessu ári.
Lögreglan í Lundúnum greinir nú frá því að maðurinn sé sakaður um tvær aðrar nauðganir gegn annarri konu, en þau atvik áttu sér stað á síðasta ári.
Leikmaðurinn var handtekinn aðfaranótt mánudags og yfirheyrður í þrjátíu klukkustundir áður en honum var sleppt. Hann er nú laus gegn tryggingu á meðan málið er í rannsókn.
Athugasemdir