05.08.15 - 23:00
Arnar Geir Halldórsson
Aly Cissokho lánaður frá Aston Villa til Porto (Staðfest)

Aly Cissokho hefur yfirgefið Villa Park

Mynd: Getty Images

Aly Cissokho hefur yfirgefið Villa Park

Mynd: Getty Images
Franski varnarmaðurinn, Aly Cissokho, hefur verið lánaður til portúgalska stórliðsins Porto frá Aston Villa.
Cissokho hefur áður leikið með Porto en hann var á mála hjá liðinu árið 2009. Frá þeim tíma hefur hann leikið með Lyon, Valencia, Liverpool og nú síðast Aston Villa.
Þessi 27 ára gamli vinstri bakvörður var ekki í plönum Tim Sherwood, stjóra Aston Villa, og hefur hann því verið lánaður til eins árs til að byrja með en Cissokho gerði fjögurra ára samning við Villa síðasta sumar.
Porto hefur unnið hörðum höndum á leikmannamarkaðnum í sumar en liðið þurfti að horfa á eftir meistaratigninni til erkifjendanna í Benfica á síðustu leiktíð.
Cissokho er fimmti leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins í sumar og fer þar með í hóp með þeim Iker Casillas, Giannelli Imbula, Alberto Bueno og Pablo Osvaldo.