05.08.15 - 19:15
Magnús Már Einarsson
„Ashley myndi sennilega skella á mig\"
Stuðningsmaður Newcastle - Agnar Freyr Gunnarsson

Agnar Freyr og pappa Michael Owen á góðri stundu í Newcastle búðinni.

Mynd: Úr einkasafni

Jack Colback spilaði vel með Newcastle á síðasta tímabili.

Mynd: Getty Images

,,Iron\" Mike Williamson er ekki vinsæll.

Mynd: Getty Images

Mike Ashley er ekki vel liðinn hjá stuðningsmönnum Newcastle.

Fótbolti.net mun hita vel upp fyrir keppni í ensku úrvalsdeildina sem hefst á laugardaginn. Við kynnum liðin í ensku úrvalsdeildinni eftir því hvar þau enda í sérstakri spá fréttamanna Fótbolta.net.
Newcastle er spáð 12. sætinu að þessu sinni.
Agnar Freyr Gunnarsson hefur verið harður Newcastle maður frá barnæsku og hann svaraði nokkrum laufléttum spurningum.

Ég byrjaði að halda með Newcastle af því að....ég sá leik í sjónvarpinu árið 1994 og varð heillaður af þessu sókndjarfa liði. Andy Cole og Peter Beardsley skoruðu og Ruel Fox var þarna hlaupandi upp kantinn. Mamma og Pabbi fóru síðan í verslunarferð til Newcastle borgar og komu tilbaka með Newcastle dagatal fyrir tímabilið ´95. Á forsíðunni var mynd af Ginola, þá var þetta endanlega (staðfest) enda ekki hægt annað en að heillast af þeim manni þó maður sé þráðbeinn.
Hafið þið farið út til Englands að sjá þitt lið spila?
Ég fór í pílagrímsferðina á St. James Park með tveimur félögum mínum á síðasta heimaleik tímabilsins 2006/2007 gegn Blackburn. Við vorum vongóðir um að sjá sigur hjá okkar mönnum enda hafði Newcastle ekki tapað síðasta heimaleik tímabilsins í úrvalsdeildinni og Michael Owen var að koma tilbaka úr meiðslum sem hann varð fyrir á HM 2006. Leikurinn tapaðist 0-2 og átti vinur minn Titus Bramble frábæran leik fyrir Blackburn. Albert Luque, leikmaðurinn sem var keyptur til að koma í stað Kóngsins Alan Shearer sem hafði hætt eftir tímabilið á undan, var á meiðslalista vegna puttabrots sem hann hafði lent í þremur mánuðum áður. Eftir leikinn var allt brjálað og þurfti að kalla til óeirðarlögreglu. Við strákarnir héldum okkur þó til hlés og létum aðra um að berja hesta.
Uppáhalds leikmaður í liðinu í dag?
Jack „ginger Pirlo“ Colback sem kom frítt frá sóðunum í Sunderland. Hann og Ayoze Perez voru einu ljósu punktarnir á síðasta tímabili. Jack Colback er baráttuhundur með ágætis löpp og miðað við hvað við Newcastle stuðningsmenn höfum þurft að þola síðustu ár þá er það nóg til þess að hann sé uppáhalds leikmaðurinn í liðinu í dag.
Leikmaður sem þú myndir vilja losna við?
Þó það séu margir farþegar í hópnum sem ég myndi glaður borga leigubílinn fyrir þá hefur „Iron“ Mike Williamson vinninginn. Ég þakka guði fyrir það að hann og Bramble séu ekki að spila saman. Williamson hefur þann einstaka hæfileika að gera alla samherja sína taugaóstyrka og óörugga í öllum sínum aðgerðum. Það er hæfileiki sem maður vill ekki hafa í hafsenti sem spilaði 31 leik í ensku úrvalsdeildinni í fyrra.
Leikmaður í liðinu sem fólk á að fylgjast sérstaklega með í vetur?
Þeir eru nokkrir í ár, Rolando Aarons er spennandi ungur og hraður vængmaður sem gæti sprungið út í ár eftir að hafa verið óheppinn með meiðsli í fyrra. Einnig eru nýju leikmennirnir Georginio Wijnaldum og Mitrovic leikmenn sem ég held að geti gert frábæra hluti í ensku úrvalsdeildinni. Wijnaldum var valinn leikmaður ársins í Hollandi í fyrra og er duglegur, tæknilega góður og hefur litið mjög vel út í æfingaleikjum fyrir tímabilið. Mitrovic er svo algerlega óútreiknanlegur en gæti verið leikmaður sem stuðningsmenn Newcastle munu elska en allir aðrir hata.
Hvaða hafsent sem er til að losna við „Iron“ Mike Williamson.
Ertu ánægður með knattspyrnustjórann?
Jáj á, jú verður maður ekki að vera það og leyfa honum að sanna sig. Hann kemur allavega með fagmennsku í starfið. Svarar ekki fjölmiðlum eins og hálfviti, kann nöfnin á leikmönnunum og virðist vita hvað hann vill ná út úr hópnum.
Var mikill léttir þegar John Carver var látinn fara í vor?
Ég opnaði einn skítkaldann. Ég hef orðið vitni að ýmsu sem Newcastle aðdáandi í gegnum tíðina og ég held að ég hafi aldrei séð eins slaka spilamennsku eins og eftir að hann tók við liðinu af Pardew. Átta tapleikir í röð var einfaldlega það daprasta sem ég hef séð.
Ef þú fengir 2 mínútna símtal við Mike Ashley eiganda Newcastle. Hvað myndir þú segja við hann?
Ég myndi segja honum að opna veskið til að vinna bikar eða komast í evrópukeppni - bið ekki um meira en einn deildarbikar. Það eru 52.000 manns á hverjum heimaleik, við erum eina liðið í Norður England sem skiptir máli (Staðfest). Stuðningsmenn Newcastle eru yfirleitt meðal þeirra sem mæta best á útileiki þrátt fyrir löng ferðalög. Gerðu þetta af fullri alvöru og með smá metnað eða hreinlega seldu klúbbinn. Við stuðningsmenn eigum betra skilið. Ákvarðanir eins og að ráða Joe Kinnear eða John Carver, steinaldarmenn sem hafa ekki hugmynd um nútíma fótbolta og eru martröð allra PR fulltrúa, eru á þína ábyrgð og hafa gert þennan stóra og flotta klúbb að lélegri sápuóperu síðustu ár. Hættu að selja okkar bestu menn á síðasta degi félagaskiptagluggans og segja svo að ekki hafi gefist tími til að finna menn í staðinn. Ekki gera lítið úr sögunni með því að gera lítið úr framlagi manna eins og Sir Bobby Robson og Alan Shearer. Í guðanna bænum ekki breyta nafninu á leikvanginum í Sports Direct Arena og ekki semja við smálánafyrirtæki sem aðalstyrktaraðila liðsins.
Á þessum tímapunkti myndi hann sennilega skella á mig....
Í hvaða sæti mun Newcastle enda á tímabilinu?9. sæti tel ég vera raunhæft. Jafnvel enn hærra ef við höldum áfram að styrkja okkur með leikmönnum á þeim kalíber eins og við höfum verið að gera fyrir tímabilið. Ég hef þó lært það af biturri reynslu í gegnum árin að gera mér ekki of miklar vonir og vera bara glaður með það að geta horft á liðið mitt í sjónvarpi en ekki þurfa að refresha textalýsingar á netinu eins og þegar við vorum í Championship deildinni.