Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 05. ágúst 2020 10:09
Elvar Geir Magnússon
Raggi meiddur og ekki með í Evrópuleiknum í dag
Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsvarnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson verður ekki með FC Kaupmannahöfn þegar liðið tekur á móti Tyrklandsmeisturum Istanbúl Basaksehir í dag.

Leikurinn hefst klukkan 16:55 en um er að ræða seinni viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Tyrkneska liðið vann fyrri leikinn 1-0.

Ragnar er á meiðslalista FCK en Michael Santos, Viktor Fischer og Nicolaj Thomsen eru einnig á þeim lista.

Ragnar framlengdi við FCK á föstudaginn og er nú samningsbundinn félaginu út næsta tímabil.

Ragnar er 34 ára og á 94 landsleiki fyrir Ísland.
Athugasemdir
banner
banner
banner