Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 05. ágúst 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Salisu til Southampton (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Southampton hefur keypt miðvörðinn Mohammed Salisu frá spænska félaginu Real Valladolid.

Kaupverðið hljóðar upp á 10,9 milljónir punda en það var riftunarverðið í samningi Salisu hjá Valladolid.

Hinn 21 árs gamli Salisu skrifaði undir fjögurra ára samning við Southampton.

Southampton er einnig að fá hægri bakvörðinn Kyle Walker-Peters frá Tottenham sem hluta af kaupverði fyrir miðjumanninn Pierre-Emile Hojbjerg sem fer í hina áttina.

Walker-Peters var á láni hjá Southampton síðari hlutann á tímabilinu og hann verður nú áfram hjá liðinu á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner