Fotbolti.net
06.10.26 - 16:02
Elvar Geir Magnússon

Þjóðadeildin: Jafntefliskóngarnir frá Færeyjum misstu niður tveggja marka forystu í Astana

Þjóðadeildin: Jafntefliskóngarnir frá Færeyjum misstu niður tveggja marka forystu í Astana
Canon

Mynd: EPA

Kasakstan 2 - 2 Færeyjar
0-1 Petur Knudsen ('22 )
0-2 Geza David Turi ('63 )
1-2 Sergey Maliy ('68 )
2-2 Nuraly Alip ('76 )
Rauð spjöld: Martin Agnarsson, Færeyjar ('65), Sergey Maliy, Kazakhstan ('85)
Kasakstan og Færeyjar gerðu 2-2 jafntefli í Astana í dag en leikurinn var hluti af riðli 3 í Þjóðadeildinni. Gunnar Vatnhamar, fyrrum leikmaður Víkings, var á sínum stað í byrjunarliði Færeyja.

Færeyingar leiddu í hálfleik en Petur Knudsen, lærisveinn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar hjá NSÍ Runavík, skoraði með skalla í fyrri hálfleik.

Geza David Turi tvöfaldaði forystu Færeyja með glæsimarki á 63. mínútu en hann á 25 ára afmæli í dag.

Leikurinn breyttist á 65. mínútu þegar Martin Agnarsson braut heimskulega af sér á gulu spjaldi og var sendur í sturtu. Kasakar náðu að nýta liðsmuninn til að jafna metin með mörkum frá Sergey Maliy og Nuraly Alip.

Liðin kláruðu síðustu mínúturnar tíu gegn tíu eftir að Sergey Maliy fékk beint rautt spjald á 85. mínútu. Galinn dómur að reka hann af velli en einhverra hluta vegna var niðurstöðunni ekki breytt í VAR.

Færeyingar hafa gert jafntefli í öllum fjórum leikjum sínum en Kasakar eru með tvö stig. Moldóva (4 stig) og Slóvakía (7 stig) mætast í hinum leik riðilsins í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.