Byrjunarlið Íslands: Rifbeinsbrotinn Gylfi byrjar

Gylfi Þór er að spila með brynju

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Andri Lucas er búinn að skora tvö mörk í verkefninu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Leó hefur spilað vel í glugganum

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gylfi Þór er að spila með brynju

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland spilar gegn Eistlandi núna klukkan 18:45 í Tallinn. Þetta er seinni leikur liðanna í þessum glugga en sá fyrri endaði 1-1. Byrjunarliðin hafa verið opinberuð og má sjá þau hér að neðan.
Arnar gerir fimm breytingar á liðinu frá 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu á Laugardalsvelli um helgina. Gylfi Þór Sigurðsson kemur inn í liðið þrátt fyrir að vera meiddur en hann hefur verið að spila rifbeinsbrotinn í nokkrar vikur núna og spilar með brynju. Hann kemur inn í liðið fyrir Andra Fannar Baldursson sem fær sér sæti á bekknum.
Varnarlínan hefur tekið á sig allt aðra mynd en í síðasta leik en Daníel Leó Grétarsson, Stefán Teitur Þórðarson og Guðlaugur Victor Pálsson koma allir inn í liðið en Daníel Leó sem hefur verið að spila miðvörð færist yfir í vinstri bakvörðinn. Aron Einar Gunnarsson, sem spilaði miðvörð í síðasta leik, þarf að sætta sig við bekkjarsetu í dag.
Andri Lucas Guðjohnsen snýr þá aftur í liðið eftir að hafa fengið að hvíla í fyrri hálfleik gegn Búlgaríu. Mikael Neville Anderson, sem fékk mikið lof fyrir sína frammistöðu í bakverðinum í síðasta leik heldur sæti sínu í liðinu en stígur upp á hægri kantinn þar sem Arnór Sigurðsson spilaði í síðasta leik en hann kemur út úr liðinu.
Mikael Egill Ellertsson, sem spilaði vinstri bakvörð gegn Búlgaríu, fékk gult spjald í síðasta leik og tekur því út leikbann í dag. Jón Dagur sem spilaði vinstra megin með honum er svo sá síðasti sem kemur út úr liðinu.

Byrjunarlið Eistland
- 12. Matvei Igonen (m)
- 20. Markus Poom
- 2. Märten Kuusk
- 3. Maksim Paskotsi
- 5. Erko Tougjas
- 6. Rasmus Peetson
- 7. Robi Saarma
- 10. Kevor Palumets
- 13. Joseph Saliste
- 14. Patrik Kristal
- 17. Mattias Mannilaan
Byrjunarlið Ísland
- 12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
- 3. Daníel Leó Grétarsson
- 4. Guðlaugur Victor Pálsson
- 7. Hákon Arnar Haraldsson
- 8. Ísak Bergmann Jóhannesson
- 9. Orri Steinn Óskarsson (f)
- 10. Gylfi Þór Sigurðsson
- 16. Stefán Teitur Þórðarson
- 18. Mikael Neville Anderson
- 22. Andri Lucas Guðjohnsen
- 23. Hörður Björgvin Magnússon

Andri Lucas er búinn að skora tvö mörk í verkefninu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Leó hefur spilað vel í glugganum

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
