Fotbolti.net
06.10.26 - 18:18
Brynjar Ingi Erluson

Ráðgjafi Ronaldo sagður hafa hótað að láta reka Jesus

Cristiano Ronaldo

Cristiano Ronaldo

Canon

Mynd: EPA

Carlos Padrao, góður vinur portúgalska landsliðsþjálfarans Jorge Jesus, segir að þjálfaranum hafi verið hótað uppsögn nema hann bæði Cristiano Ronaldo afsökunar.
Ronaldo snýr ekki aftur nema Jesus fari
TENGT EFNI

Ronaldo snýr ekki aftur nema Jesus fari

Jesus valdi Ronaldo í hópinn gegn Norðmönnum í annarri umferð Þjóðadeildarinnar og lét hann hita upp en sendi hann aldrei inn á.

Það fór illa í Ronaldo sem yfirgaf landsliðshópinn í kjölfarið. Hann taldi Jesus hafa brotið loforð sem hann hafði gefið honum fyrir keppnina og síðan hefur mikil pressa verið á þjálfaranum og portúgalska fótboltasambandinu að ná sáttum við hann.

Jesus viðurkenndi eftir síðasta leik Portúgala að hafa gert mistök en baðst ekki afsökunar. Hann ítrekaði að það væri hann sem tæki ákvarðanirnar og leikmennirnir yrðu að sætta sig við það.

Jesus sagðist jafnframt ætla að velja Ronaldo í næsta landsleikjahóp en samkvæmt ESPN mun framherjinn ekki snúa aftur á meðan hann stýrir liðinu.

Padrao, sem er góður vinur Jesus, segir að þjálfaranum hafi verið hótað vegna málsins.

„Þeir hótuðu að reka hann ef hann bæði Ronaldo ekki afsökunar. Þeir ætluðu að skrifa fyrir hann afsökunarbeiðni sem hann átti að flytja. Að viðurkenna mistök er eitt en að biðjast afsökunar er annað,“ sagði Padrao.

Að sögn Padrao var það Tiago Craveiro sem hótaði að láta reka Jesus og kom þeim skilaboðum til föruneyti hans. Craveiro starfaði áður hjá portúgalska sambandinu og UEFA en er nú ráðgjafi hjá CR7 SA, fyrirtæki Ronaldo.
Jorge Jesus

Jorge Jesus

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.