Fotbolti.net
06.10.26 - 20:46
Brynjar Ingi Erluson

Gummi Kristjáns leggur skóna á hilluna

Gummi Kristjáns leggur skóna á hilluna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Kristjánsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið en hann greinir frá ákvörðuninni á samfélagsmiðlum í kvöld.
Guðmundur er fæddur árið 1989 og uppalinn í Breiðabliki þar sem hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki.

Hann var í lykilhlutverki þegar Blikar urðu Íslandsmeistarar árið 2010 og einn besti miðjumaður deildarinnar á þeim tíma. Frammistaðan skilaði honum líka tækifærum með landsliðinu en hann á sjö A-landsleiki að baki.

Árið 2012 hélt hann til Start í Noregi þar sem hann lék í sex tímabil, fjögur í efstu deild og tvö í þeirri næstefstu. Hann sneri síðan heim og gekk til liðs við FH.

Eftir fimm tímabil í Hafnarfirði fór Guðmundur í Stjörnuna þar sem hann er nú að ljúka sínu fjórða og síðasta tímabili á ferlinum.

„Takk fyrir mig. Þetta tímabil verður mitt síðasta sem leikmaður. Ég er stoltur að hafa getað spilað leikinn sem ég elska svona lengi.“

„Takk fyrir allir liðsfélagar, þjálfarar og fólk sem ég hef unnið með í gegnum árin.

„Ég er þakklátur fyrir allt fólkið sem ég hef kynnst, staðina sem ég hef heimsótt og minningar sem ég hef eignast. Mest er ég þó þakklátur fjölskyldunni minni fyrir að hafa staðið með mér í þessu,“
sagði Guðmundur á Instagram.


Gummi Kristjáns leggur skóna á hilluna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.