Fotbolti.net
05.08.26 - 18:20
Brynjar Ingi Erluson

Jaissle tekinn við Newcastle (Staðfest)

Jaissle tekinn við Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Newcastle United

Newcastle United hefur ráðið Þjóðverjann Matthias Jaissle sem nýjan stjóra liðsins. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning í dag.
Jaissle tekur við af Eddie Howe sem sagði starfi sínu lausu eftir fimm ár við stjórnvölinn hjá Newcastle.

Howe sagðist vera andlega og líkamlega búinn á því eftir dvölina en hann var einnig ósáttur við ákvarðanir stjórnarmanna félagsins á leikmannamarkaðnum.

Newcastle hóf viðræður við Jaissle skömmu eftir brotthvarf Howe og hefur nú staðfest ráðningu Þjóðverjans. Jaissle var samningsbundinn Al Ahli en Newcastle greiðir rúmar níu milljónir punda fyrir að fá hann lausan.

„Það er ótrúlegur heiður að taka við sem stjóri Newcastle United. Þetta er eitt stærsta félag Evrópu, með einstaka sögu, sterkan karakter og frábæra stuðningsmenn. Ég hlakka til að kynnast ástríðunni og tengslunum við stuðningsmennina af eigin raun,“ sagði Jaissle.

Newcastle verður fjórða félagið sem Jaissle stýrir á stuttum þjálfaraferli. Hann tók við Liefering árið 2021 og færði sig síðar sama ár til Salzburg. Undanfarin þrjú ár hefur hann stýrt Al Ahli.

Jaissle lék áður með Hoffenheim og kom við sögu með U21 árs landsliði Þýskalands, en neyddist til að leggja skóna snemma á hilluna vegna þrálátra meiðsla.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.