Fotbolti.net
05.08.26 - 18:04
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Á sölulista en neitar að fara

Benjamin Pavard (t.h) vill ekki fara frá Inter

Benjamin Pavard (t.h) vill ekki fara frá Inter

Canon

Mynd: EPA

Franski varnarmaðurinn Benjamin Pavard hefur hafnað áhuga frá Benfica, Como og Galatasaray á síðustu dögum, en hann vill vera áfram í herbúðum Inter.
Pavard er þrítugur og hefur verið á mála hjá Inter frá árinu 2023 án þess að festa sig almennilega í sessi. Á síðustu leiktíð lék hann með Marseille á láni en sneri aftur til Mílanó í sumar.

Inter hefur sett Frakkann á sölulista og ítrekað reynt að finna honum nýtt félag. Pavard vill hins vegar hvergi fara og reynir að sannfæra stjórnarmenn Inter um að gefa sér annað tækifæri.

Staðan gæti haft bein áhrif á möguleg kaup Inter á Cristian Romero. Ítalska félagið vill sækja Argentínumanninn frá Tottenham en þarf líklega að losa Pavard áður en það getur gengið frá kaupunum.

Inter fékk John Stones á frjálsri sölu á dögunum og vill einnig bæta Romero við varnarlínuna. Atlético Madríd er þó einnig á eftir honum og gæti haft vinninginn ef Inter tekst ekki að losa Pavard af launaskránni.

Pavard varð heimsmeistari með Frökkum árið 2018 og hefur skorað fimm mörk í 55 landsleikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.