05.08.26 - 17:51
Brynjar Ingi Erluson
Vini Jr mun líklega hafna Arsenal og framlengja við Madrídinga

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska félagið Real Madrid fundaði í dag með brasilíska sóknarmanninum Vinicius Junior og umboðsmönnum hans í dag, en að sögn spænskra miðla var fundurinn jákvæður og er talið líklegt að hann muni framlengja dvöl sína í Madríd.
Viðræður Real Madrid og Vini Jr um nýjan samning hafa staðið yfir í meira en eitt og hálft ár.
Brasilíumaðurinn hefur farið fram á 30 milljónir evra í árslaun, svipað og Kylian Mbappe þénar hjá félaginu. Madrídingar voru hins vegar aðeins tilbúnir að bjóða honum um 20 milljónir og lengi leit út fyrir að bilið á milli væri of breitt.
Arsenal hefur rætt við föruneyti Vini Jr undanfarna mánuði og fengið jákvæð viðbrögð. Enska félagið hefur þó beðið átekta og viljað sjá hvort Real Madrid tækist að semja við leikmanninn.
Staðan varð skýrari eftir fund Vini Jr og stjórnarmanna Real Madrid í dag. Fundurinn gekk vel og eru Madrídingar nú tilbúnir að hækka tilboð sitt og koma betur til móts við launakröfur leikmannsins.
Marca og fleiri spænskir miðlar telja því auknar líkur á að Vini Jr skrifi undir nýjan langtímasamning og verði áfram í Madríd.
Náist samkomulag ekki mun Real Madrid hins vegar íhuga að selja hann. Arsenal fylgist áfram grannt með stöðunni en endanleg niðurstaða gæti legið fyrir á næstu dögum.
Samkvæmt enskum miðlum er Arsenal tilbúið að bjóða Brasilíumanninum töluvert hærri laun. Boltinn er því hjá Vini Jr sem þarf nú að ákveða hvar framtíð hans liggur.