Fotbolti.net
05.08.26 - 17:30
Kári Snorrason

O'Neill á sjúkrahúsi eftir að hafa gengist undir aðgerð

O'Neill á sjúkrahúsi eftir að hafa gengist undir aðgerð
Canon

Mynd: EPA

Martin O'Neill, stjóri Celtic, hefur verið lagður inn á sjúkrahús eftir að hafa gengist undir minniháttar aðgerð.

Félagið greinir frá tíðindunum en ekki hvers eðlis aðgerðarin er. En búist er við því að hinn 74 ára O'Neill útskrifist af sjúkrahúsi á næsta einum til tveimur dögum.
Hann tók við sem fastur knattspyrnustjóri Celtic í júní eftir að hafa verið bráðabirgðastjóri liðsins í tvígang á síðustu leiktíð, þar sem liðið vann bæði skosku úrvalsdeildina og skoska bikarinn.

Hann stýrði liðinu síðast á mánudag þegar Celtic hóf titilvörn sína í deildinni með 1-0 sigri á Dundee.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.