Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   mið 05. október 2022 00:03
Brynjar Ingi Erluson
Messi ekki búinn að taka ákvörðun - Skýrist á næsta ári
Lionel Messi
Lionel Messi
Mynd: EPA
Argentínski snillingurinn Lionel Messi mun ekki ákveða framtíð sína fyrr en á næsta ári. Þetta segir Fabrizio Romano.

Messi, sem er 35 ára gamall, hefur verið samningsbundinn Paris Saint-Germain frá 2021, en hann kom þá eftir að samningur hans við Barcelona rann sitt skeið.

Fyrsta tímabilið var nokkuð erfitt fyrir Messi og skilaði hann ekki sömu tölum og hann var vanur að gera með Barcelona, en hann er þó búinn að finna sitt gamla form og hefur verið frábær á þessari leiktíð.

Samningur hans hjá PSG gildir út tímabilið, en það bárust fréttir frá Spáni að hann ætlaði sér að ganga aftur í raðir Barcelona á næsta ári en Romano segir þetta ekki rétt.

Samkvæmt hans heimildum þá hefur Messi ekki tekið ákvörðun um framtíð sína og mun hann ekki taka ákvörðun fyrr en á næsta ári.

PSG ætlar að reyna að framlengja samning hans og má því búast við harðri baráttu eftir áramót.
Athugasemdir
banner
banner