22.11.26 - 18:54
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Lærlingar Amorim skoruðu fimm

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Milan 5 - 1 Frosinone
1-0 Gabriele Calvani ('4 , sjálfsmark)
2-0 Goncalo Ramos ('19 )
2-1 Patrizio Masini ('25 )
3-1 Ardon Jashari ('48 )
4-1 Alphadjo Cisse ('60 )
5-1 Christian Pulisic ('68 )
1-0 Gabriele Calvani ('4 , sjálfsmark)
2-0 Goncalo Ramos ('19 )
2-1 Patrizio Masini ('25 )
3-1 Ardon Jashari ('48 )
4-1 Alphadjo Cisse ('60 )
5-1 Christian Pulisic ('68 )

TENGT EFNI
Ítalía: Mikael og Genoa aftur á sigurbraut
Sóknarleikurinn hjá lærlingum Rúben Amorim í liði AC Milan er heldur betur kominn í gang og skoraði liðið fimm mörk á heimavelli í dag.
Milan tók á móti nýliðum Frosinone sem hafa verið afar öflugir á upphafi tímabils, en í dag áttu þeir ekki séns gegn Milan.
Bæði lið sköpuðu færi í opnum og skemmtilegum slag en Milan skapaði bestu færin og uppskar eftir því.
Gabriele Calvani gerði fyrsta markið snemma leiks þegar hann skoraði sjálfsmark eftir frábæra skyndisókn hjá Adrien Rabiot og Christian Pulisic.
Goncalo Ramos tvöfaldaði forystuna eftir aðra skyndisókn þar sem Diego Moreira og Rabiot voru í lykilhlutverki, en skömmu síðar minnkaði Patrizio Masini muninn fyrir gestina og var staðan 2-1 í leikhlé.
Í síðari hálfleik tvöfaldaði Ardon Jashari forystu heimamanna á ný með frábærri afgreiðslu áður en hinn bráðefnilegi Alphadjo Cisse setti fjórða mark heimamanna á 60. mínútu eftir enn eina skyndisóknina.
Christian Pulisic skoraði svo fimmta og síðasta mark Milan eftir skyndisókn í kjölfar hornspyrnu. Lokatölur 5-1 og er Milan í fjórða sæti með 27 stig eftir 12 umferðir - fimm stigum á eftir toppliði Lazio.
Þetta var annar tapleikur Frosinone í röð og situr liðið eftir í sjöunda sæti með 20 stig.