Fotbolti.net
05.11.14 - 20:30
Mist Rúnarsdóttir

Íris Dögg hætt í Fylki (staðfest)

Íris Dögg er hætt hjá Fylki

Íris Dögg er hætt hjá Fylki

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Markvörðurinn Íris Dögg Gunnarsdóttir ætlar ekki að spila áfram með Fylki en þetta staðfesti hún í samtali við Fótbolta.net í dag.

Íris Dögg er uppalin hjá Fylki en hefur einnig leikið með KR og FH þar sem hún var í láni síðari hluta sumars.
,,Okkar samstarf er bara komið á leiðarenda\", sagði Íris Dögg aðspurð um ákvörðunina sem hún segist hafa tekið í rólegheitum eftir tímabilið.

Ljóst er að Íris Dögg spilar því með nýju liði á næstu leiktíð en hún vildi lítið gefa upp um hvaða lið hafa haft samband við hana.

,,No comment. Ég stefni bara á að spila með einhverju æðislegu liði og njóta lífsins\", sagði Íris Dögg um framhaldið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.