05.12.14 - 09:24
Magnús Már Einarsson
Eiður Smári til Bolton (Staðfest)

Eiður Smári er kominn til Bolton á nýjan leik.

Mynd: Getty Images

Eiður Smári Guðjohnsen hefur skrifað undir hjá Bolton Wanderers en samningurinn er út tímabilið. Honum hefur verið úthlutað treyjunúmerið 22 sem hann lék með á bakinu hjá Chelsea sínum tíma.
Eiður Smári hefur æft með Bolton undanfarnar vikur og spilað tvo leiki með varaliði félagsins.

Þessi 36 ára gamli leikmaður getur fengið strax leikheimild með Bolton þar sem hann hefur verið án félags undanfarnar vikur.
Eiður fór frá Club Brugge í Belgíu í sumar en hann þekkir enska boltann inn og út.
Eiður gekk fyrst í raðir Bolton árið 1998 og skoraði 19 mörk í 59 deildarleikjum með liðinu áður en Chelsea keypti hann á fjórar milljónir punda.
Hjá Chelsea var Eiður lengi lykilmaður en hann varð meðal annars tvívegis enskur meistari með liðinu áður en hann fór til Barcelona árið 2007.
Eiður fór til Monaco árið 2009 en hann hefur einnig leikið með Tottenham, Stoke, Fulham, AEK Aþenu og Cercle Brugge á ferli sínum.
Bolton er í 18. sæti í ensku Championship deildinni en liðið mætir Reading á laugardag. Möguleiki er að Eiður Smári spili þann leik.