05.12.14 - 07:00
Daníel Freyr Jónsson
Selfoss fær bandarískan markvörð (Staðfest)

Chante Saliford.

Mynd: UCLA Athletes

Chante Saliford.

Mynd: UCLA Athletes

Selfoss hefur samið við bandaríska markvörðinn Chante Sandiford og mun hún leika með liðinu í Pepsi-deild kvenna næsta sumar.
Sandiford hefur verið viðloðin yngri landslið Bandaríkjana og hefur verið öflug með liði UCLA háskólans.
Eftir útskrift þaðan gerði hún samning við rússneska liðið FC Zorky Krasnogorsk og varð meðal annars rússneskur meistari með liðinu á síðasta ári.
Samkvæmt Sunnlenska.is er frekari frétta af leikmannamálum Selfoss að vænta í kringum áramót.

Heimild: Sunnlenska