Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   mið 05. desember 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Stórliðin mega ekki misstíga sig
Mynd: Getty Images
Það eru sjö leikir á dagskrá í 32-liða úrslitum spænska Konungsbikarsins í kvöld.

Kvöldið hefst á heimaleik Atletico Madrid gegn neðrideildaliði Sant Andreu, en Atletico vann fyrri leikinn 0-1 á útivelli.

Girona tekur þá á móti spútnik liði Alaves eftir 2-2 jafntefli í fyrri leiknum og eigast Real Sociedad og Celta Vigo einnig við eftir jafntefli í fyrri leik.

Sevilla tekur á móti Villanovense eftir markalaust jafntefli og Villarreal fær Almeria í heimsókn, en fyrri leikurinn þar endaði 3-3.

Barcelona er einu marki yfir gegn Leonesa sem mætir á Camp Nou í annað sinn í sögunni og þá er Real Valladolid yfir gegn Mallorca.

Leikir kvöldsins:
18:30 Atletico Madrid - Sant Andreu (1-0)
18:30 Girona - Alaves (2-2)
19:30 Real Sociedad - Celta Vigo (1-1)
19:30 Sevilla - Villanovense (0-0)
19:30 Villarreal - Almeria (3-3)
20:30 Barcelona - Leonesa (1-0)
20:30 Real Valladolid - Mallorca (2-1)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner