Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 05. desember 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Anton Freyr áfram í Keflavík (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Freyr Hauks Guðlaugsson hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum við Keflavík.

Anton lék sautján leiki í Lengjudeildinni í sumar þegar Keflavík vann deildina.

Keflavík leikur í Pepsi Max-deildinni á komandi leiktíð. Anton er fæddur árið 1997 og á að baki sextán yngri landsliðsleiki.

„ Þetta eru ánægjulegar fréttir þar sem Anton lék óvænt en þó vel lykilhlutverk að tryggja liðinu upp í efstu deild á nýjan leik. Mikið er vænst af Antoni og óskum við honum góðs gengis. Anton hefur leikið fyrir Keflavík allan sinn feril fyrir utan eitt tímabil með Njarðvíkingum 2015 á láni," segir í færslu Keflavíkur á Facebook.
Athugasemdir
banner
banner
banner