Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. desember 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjarðabyggð semur við fjóra unga leikmenn
Mynd: Fjarðabyggð
Fjórir ungir leikmenn skrifuðu undir samning við knattspyrnudeild Fjarðabyggðar í vikunni.

Þá má sjá á myndinni hér við fréttina, frá vinstri: Freysteinn Bjarnason, Oddur Óli Helgason, Bjartur Hólm Hafþórsson og Hákon Þorbergur Jónsson.

Allir leikmenn eru fæddir árið 2003 og léku með liðinu á liðinni leiktíð. Fresyteinn lék einn leik með liðinu í sumar, Oddur lék átta deildarleiki í sumar, Bjartur lék einn leik og Hákon lék níu leiki.

Fjarðabyggð endaði í 8. sæti 2. deildar á liðinni leiktíð.
Athugasemdir
banner