Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 05. desember 2020 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sævar Gylfa og Ljubomir áfram hjá KF
Mynd: KF
Tveir leikmenn hafa skrifað undir nýja samninga við KF og munu leika áfram með félaginu á næstu leiktíð.

Leikmennirnir eru þeir Sævar Gylfason og Ljubomir Delic. Sævar er fæddur árið 2000 og Ljubomir árið 1995.

Í færslu KF á Twitter kemur fram að Ljubomir sé sestur að á Ólafsfirði ásamt eiginkonu sinni. Hann kom fyrst til KF árið 2017 og hefur leikið 74 leiki með liðinu og skorað tuttugu mörk.

KF kom mörgum spekingum á óvart í sumar og endaði í sjötta sæti 2. deildar sem nýliði í deildinni. Liðinu var spáð botnsæti deildarinnar fyrir tímabilið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner