lau 05. desember 2020 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Svo lengi sem ég næ markmiðum mínum er mér alveg sama hvar ég spila"
Valgeir sá glufu í vinstri bakverðinum og smeygði sér þar inn
Valgeir skoraði þrjú mörk í deildinni í sumar. Hér er einu þeirra fagnað, stökkið er hátt.
Valgeir skoraði þrjú mörk í deildinni í sumar. Hér er einu þeirra fagnað, stökkið er hátt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tímabilið var frábært hjá bæði mér persónulega og Valsliðinu, ég gæti ekki beðið um meira
Tímabilið var frábært hjá bæði mér persónulega og Valsliðinu, ég gæti ekki beðið um meira
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir hefur hjálpað mér persónulega ótrúlega mikið með að verða betri leikmaður á vellinum. Hann og Túfa  eru frábærir saman. Þeir segja mér á hverri æfingu hvað ég get gert betur. Ég held ég gæti ekki beðið um betra þjálfarateymi.
Heimir hefur hjálpað mér persónulega ótrúlega mikið með að verða betri leikmaður á vellinum. Hann og Túfa eru frábærir saman. Þeir segja mér á hverri æfingu hvað ég get gert betur. Ég held ég gæti ekki beðið um betra þjálfarateymi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var alltaf undir mér komið að sanna mig á æfingum á meðan banninu stóð og ég hélt stöðunni þannig.
Það var alltaf undir mér komið að sanna mig á æfingum á meðan banninu stóð og ég hélt stöðunni þannig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aukaspyrnumarki Einars gegn Blikum fagnað.
Aukaspyrnumarki Einars gegn Blikum fagnað.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
 Ég held að allir þurfi að sanna sig fyrir nýjum þjálfara og ég held að skýrasta dæmið hafi verið Kristinn Freyr (Sigurðsson).
Ég held að allir þurfi að sanna sig fyrir nýjum þjálfara og ég held að skýrasta dæmið hafi verið Kristinn Freyr (Sigurðsson).
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sparkað með hægri -  Ég er ekki alltaf 100% og vil nota hægri meira því ég vil ekki klúðra einfaldri sendingu
Sparkað með hægri - Ég er ekki alltaf 100% og vil nota hægri meira því ég vil ekki klúðra einfaldri sendingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég hef eignað mér margt sem hann hefur í sínum leik og hef reynt að læra af honum til að bæta minn leik. Það er frábært að geta lært af svona reynslumiklum gæja.
Ég hef eignað mér margt sem hann hefur í sínum leik og hef reynt að læra af honum til að bæta minn leik. Það er frábært að geta lært af svona reynslumiklum gæja.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnus Egilsson - Heimir fékk hann inn í liðið og maður skilur vel að Heimir hafði bilaða trú á honum.
Magnus Egilsson - Heimir fékk hann inn í liðið og maður skilur vel að Heimir hafði bilaða trú á honum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valgeir Lunddal Friðriksson átti draumatímabil með Val í Pepsi Max-deildinni. Eftir leiktíðina var hann bæði valinn í lið tímabilsins og valinn efnilegasti leikmaður mótsins hér á Fótbolti.net. Valgeir, sem er nítján ára gamall, varð Íslandsmeistari með Val og spilaði fimmtán af átján leikjum liðsins í sumar.

Hann gekk í raðir Vals frá Fjölni fyrir síðasta tímabil en var mikið frá vegna meiðsla og lék einungis örfáar mínútur á síðasta tímabili. Í þessum fyrri hluta viðtalsins verður farið yfir tímabilið í ár en í seinni hlutanum verður frekar einblínt á framtíðarsýn Valgeirs.

Valgeir var fyrst spurður út í viðurkenningarnar sem hann fékk fyrir sína frammistöðu í sumar.

„Þetta er gott hrós og fær mann til að vilja meira. Þetta er viðurkenning fyrir allt það sem maður hefur lagt á sig. Þetta lætur mann vilja stefna hærra. Tímabilið var frábært hjá bæði mér persónulega og Valsliðinu, ég gæti ekki beðið um meira," sagði Valgeir.

Kemur uppskeran honum á óvart?

„Ég var náttúrulega meiddur allt síðasta tímabil og spilaði einhverjar átta mínútur. Stefnan fyrir þetta tímabil var að komast í byrjunarliðið en í byrjun var Magnus (Egilsson) í liðinu. Heimir fékk hann inn í liðið og maður skilur vel að Heimir hafði bilaða trú á honum. Það var mitt að standa mig vel á æfingum til að fá tækifærið og koma mér í liðið. Um leið og Magnus meiddist þá þurfti ég að grípa tækifærið og ég stóð mig vel gegn HK í fyrsta byrjunarliðsleiknum. Þá og eftir það byrjaði boltinn að rúlla hjá mér.“

Var leikurinn gegn HK draumabyrjun á tímabilinu?

„Já, ég lagði upp í leiknum á Patrick (Pedersen), við héldum hreinu og ég spilaði allan leikinn. Ég gæti ekki verið sáttari með þann leik og hefði ekki getað óskað mér betri leik í fyrsta byrjunarliðsleiknum. Svo lá leiðin bara upp á við eftir það.“

Hafði spilað einn leik í vinstri bakverði
Valgeir lék í vinstri bakverði á leiktíðinni. Áður en haldið er í dýpri pælingar var Valgeir spurður út í þá leikstöðu og rifjaði fréttaritari upp ummæli Valgeirs úr viðtali frá því fyrir leiktíðina. „Mér finnst bakvarðarstaðan skemmtileg, spilaði allt undirbúningstímabílið núna í hægri bakverði, Lengjubikar og Reykjavíkurmótinu fyrir utan einn leik þar sem ég var í vinstri bakverði," sagði Valgeir fyrir mót.

„Ég hef eiginlega aldrei spilað í vinstri bakverði, alltaf verið hægra megin. Það hefur gerst í unglingalandsliðinu, á æfingum þar, þá hefur mér oft verið stillt upp í vinstri bakverðinum og ég lék gegn Póllandi á Norðurlandamótinu í þeirri stöðu. Það var minn fyrsti og eini leikur í vinstri bakverði fyrir síðasta undirbúningstímabil.“

Er Valgeir góður með vinstri fætinum?

„Ég er fínn en þó misjafn með vinstri. Ég er ekki alltaf 100% og vil nota hægri meira því ég vil ekki klúðra einfaldri sendingu. Ég get átt góðar fyrirgjafir með vinstri en líka alveg nokkuð slæmar þannig þetta rokkar svolítið upp og niður.“

„Svo lengi sem ég næ markmiðum mínum er mér alveg sama hvar ég spila"
Sér Valgeir fyrir sér að hann verði bakvörður á sínum ferli?

„Já, ég held það. Ég var hægri kantmaður en í Fjölni vildi Óli Palli prófa mig í bakverðinum fyrir tímabilið 2018. Það vantaði bakvörð og menn voru held ég að sjá mig sem svipaðan leikmann og Viðar Ara Jónsson (atvinnumann sem lék áður með Fjölni). Ég var ekki leikmaðurinn sem skoraði mikið á kantinum en ég var mikið í því að búa til og leggja upp mörk."

„Ég sé bakvörðinn fyrir mér þegar ég lít í framtíðina á mínum ferli. Ég bý yfir mikilli hlaupagetu og get hlaupið upp og niður kantinn. Í bakverðinum get ég lagt upp mörk og kannski laumað inn nokkrum mörkum.“


Valgeir er stór og stæðilegur og upp hefur komið sú umræða hvort hann gæti spilað í miðverði í framtíðinni. Hvernig sér Valgeir þá hugmynd fyrir sér?

„Það er allt í góðu pæling. Svo lengi sem ég næ markmiðum mínum er mér alveg sama hvar ég spila. Ég vil ná lengra heldur en að spila á Íslandi og vil spila í stórum deildum. Ég vil komast langt í fótboltanum. Í nútímafótbolta þurfa miðverðir að vera góðir með boltann og það er allt í lagi mín vegna ef ég fer í miðvörðinn.“

„Þannig rúllar Birkir Már og ég hef reynt að tileinka mér það"
Hvernig er að hafa landsliðsbakvörðinn Birki Má Sævarsson með sér í liði, til að læra af og hvetja sig áfram?

„Birkir Már er algjör meistari og við náum mjög vel saman, getum spjallað um allt. Það er frábært að vera með honum í liði og geta lært af honum. Ég hef tileinkað mér margt sem hann hefur í sínum leik og hef reynt að læra af honum til að bæta minn leik. Það er frábært að geta lært af svona reynslumiklum gæja.“

Er eitthvað eitt, sem Birkir hefur kennt Valgeiri eða Valgeir lært af Birki, sem stendur upp úr?

„Já, kannski helst að Birkir er það reyndur að hann gerir fá mistök. Ég held að enginn geti nefnt mistök sem hann hefur gert sem hafa kostað mark. Það að gera sem fæst mistök er eitthvað sem ég horfi í. Hann líka þekkir mjög vel sín takmörk inn á vellinum, hann gerir ekkert meira en hann getur. Birkir er mjög stöðugur í sínum frammistöðum og fer ekki fram úr sér, gerir sitt og veit sitt hlutverk – þannig rúllar Birkir Már og ég hef reynt að tileinka mér það.“

Kristinn Freyr skýrasta dæmið
Tveir molar komu fram hér að ofan, Valgeir nefndi að Heimir Guðjónsson hefði fengið inn Magnus Egilsson í vinstri bakvörðinn og Valgeir er réttfættur. Birkir Már Sævarsson átti frábært tímabil í hægri bakverðinum og spilaði alla leiki í þeirri stöðu. Fréttaritari velti fyrir sér samkeppninni við Birki upprunalega og svo Magnus í framhaldinu. Fyrri spurningin var um þankagang Valgeirs og möguleg áform Vals með hann á tímabilinu. Var rætt um þann möguleika fyrir mót að Valgeir færi í annað félag á láni til að fá mínútur á vellinum?

„Nei. Ég vildi auðvitað fá að spila og ég talaði aldrei við neinn hjá Val um mögulegt lán. En ég var búinn að hugsa þá hugsun að mögulega í sumarglugganum myndi ég ræða stöðuna við Val ef ég væri búinn að spila lítið. Stefnan mín var samt að vinna mér sæti í byrjunarliði Vals. Ég var að standa mig vel á æfingum og ég vissi að ég gat verið í liðinu en þurfti að fá tækifærið. Þegar tækifærið kom þá gerði ég mitt besta og það gekk bara nokkuð vel.“

Seinni spurningin var um Heimi Guðjónsson og þá staðreynd að Heimir ákvað að fá Magnus með sér frá Færeyjum. Fannst Valgeiri að hann þurfti að sanna sig algjörlega frá grunni fyrir nýjum þjálfara? Vissi Óli Jó (Ólafur Davíð Jóhannesson), fyrrum þjálfari liðsins, eitthvað um Valgeir sem Heimir vissi ekki? Fréttaritari kom inn á þau ummæli Heimis að hann hafi ekki vitað hversu góður Valgeir væri í fótbolta.

„Þegar ég mætti í Val fyrir tímabilið í fyrra þá náði ég einungis nokkrum æfingum með liðinu áður en ég meiddist. Það fyndna er að Óli Jó sagði það nákvæmlega sama við mig eins og Heimir sagði í hlaðvarpsviðtalinu. Óli Jó vissi lítið um mig því ég hafði nú ekki spilað það mikið."

„En það er alltaf þannig þegar nýir þjálfarar koma inn að þá þarf maður að sanna sig og leggja sig allan fram á öllum æfingum, eins og maður gerði áður. Ég held að allir þurfi að sanna sig fyrir nýjum þjálfara og ég held að skýrasta dæmið hafi verið Kristinn Freyr (Sigurðsson). Hann var búinn að vera bestur í deildinni árin á undan en hann átti ekki byrjunarliðssæti fyrir mótið. Hann sannar sig svo á æfingum og í leikjum og það sýnir þörfina á að leggja sig fram þar."


Þarft að standa þig vel á æfingum undir stjórn Heimis
Það tók smá tíma fyrir Valgeir að vinna sér fast sæti í byrjunarliði Vals. Þegar hann svo náði því, upplifði hann þá algjört öryggi með að vera alltaf í byrjunarliði liðsins?

„Einhvern veginn gerðist það aldrei. Ég vissi aldrei að ég væri 100% með sætið en þegar maður stendur sig vel fer maður þó aðeins að búast við því. Magnus meiðist og ég er á tímapunkti eini vinstri bakvörðurinn. Ég fer tvisvar í leikbann og í annað skiptið kom Einar Karl (Ingvarsson) inn og stóð sig vel í bakverðinum."

„Ég var ekki beint smeykur við að missa stöðuna en vissi að ég þurfti að skila mínu besta á æfingum. Heimir er bara þannig þjálfari að ef þú stendur þig ekki vel á æfingum þá ertu bara á bekknum. Hann er mikill æfingaþjálfari og vill að menn séu upp á tíu þar, annars getur allt gerst.“


Var manna fegnastur að Valur náði að jafna
Valgeir fékk að líta eftirminnilegt rautt spjald í sumar. Það fékk hann fyrir að fá tvö gul gegn Breiðabliki á heimavelli. Orðin „Valgeir nánast henti þessum leik í ruslið fyrir Valsmenn“ voru orð sem Hjörvar Hafliðason eftir leikinn. Valgeir var spurður út í hvaða hugsanir fóru í gegnum huga hans þegar hann sá seinna gula spjaldið fara á loft fyrir peysutog.

„Á því augnabliki vissi ég að ég hefði ekki gert vel og hefði getað verið búinn að koma boltanum í burtu áður en atvikið átti sér stað. Ég hélt aldrei að ég myndi fá gula spjaldið því boltinn var út í horni og mínir liðsfélagar voru að fara taka við Blikanum. Ég ætlaði að skokka inn í teig og gera mig kláran í að dekka þegar ég sá dómarann fara í vasann. Það var sjokk. Fyrra spjaldið var heimskulegt, heimskulegra en þetta. Ég læri af þessu. Ég var svo manna fegnastur og fagnaði ekkert eðlilega mikið þegar við jöfnuðum í lokin, mjög sáttur með jafnteflið. Það hefði verið skellur ef við hefðum tapað leiknum.“

Valgeir fór tvisvar í bann í sumar. Hvernig var að koma sér aftur inn í Valsliðið?

„Það var auðvitað möguleiki að ég myndi detta úr liðinu ef einhver myndi taka stöðuna af mér. En ég var búinn að sanna mig vel fyrir þjálfurunum í þeim leikjum sem ég fékk fyrir leikbannið. Rasmus (Christiansen) spilaði gegn KA í vinstri bakverði og ég vissi svo sem að Rasmus myndi ekki byrja næsta leik á eftir í vinstri bakverði. Það var alltaf undir mér komið að sanna mig á æfingum á meðan banninu stóð og ég hélt stöðunni þannig.“

Gæti ekki óskað sér betri þjálfara
Valgeir var beðinn um að bera saman hvernig hann upplifði Óla Jó hjá Val og svo hvernig hann hefur upplifað Heimi til þessa. Hvaða breytingar hafa orðið á hlutunum hjá Val?

„Þeir eru ólíkir þjálfarar. Óli Jó leggur meira upp úr frjálsræði leikmanna á vellinum, leikmenn eiga bara að spila sinn leik og njóta þess að vera á vellinum. Heimir er meira með taktík, hann vill æfa mikið og leggur mikið upp úr uppspili. Ég held að það sé aðalmunurinn.”

„Heimir hefur hjálpað mér persónulega ótrúlega mikið með að verða betri leikmaður á vellinum. Hann og Túfa (Srdjan Tufegdzic, aðstoðarþjálfari) eru frábærir saman. Þeir segja mér á hverri æfingu hvað ég get gert betur. Ég held ég gæti ekki beðið um betra þjálfarateymi. Það er klárt að traustið sem ég fæ frá þeim hefur bætt mig sem fótboltamann. Maður veit að maður þarf að standa sig á æfingum í Val til að fá tækifærið á að spila, geggjaðir þjálfarar.”


„Minna er betra Valgeir"
Fréttaritari náði Valgeiri á léttu nótunum þegar rætt var um Heimi undir lok viðtals. Heimir hefur það orð á sér að svara oft spurningum án þess þó að svara þeim í raun og veru. Vopnunum er haldið þétt að sér í viðtölum. Valgeir gat tengt við þetta og sagði frá atviki fyrir fyrsta eftir-leiks-viðtalið í sumar.

„Heimir ræddi við mig eftir Víkingsleikinn, þar sem ég skoraði tvö mörk. Þá var ég að fara í viðtal hér á .net og við Stöð 2 Sport. Heimir sagði við mig fyrir viðtalið: ‘Minna er betra Valgeir’. Tala minna er betra, Heimir er frábær,” sagði Valgeir og þar með líkur fyrri hluta viðtalsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner