06.01.15 - 19:00
Magnús Már Einarsson
Calvin Crooks í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Úr leik hjá BÍ/Bolungarvík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

BÍ/Bolungarvík hefur samið við vinstri bakvörðinn Calvin Crooks um að hann leiki með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Calvin er 23 ára Englendingur en hann er einnig með bandarískt ríkisfang.
Calvin kemur meðal annars í gegnum unglingastarf New York Redbulls og á yfir 20 leiki með yngri landsliðum Bandaríkjanna.
Calvin hefur spilað á Englandi síðastliðin ár en hann var meðal annars tvö tímabil í varaliði Crystal Palace. Þá hefur hann einnig leikið með liðum í neðri deildum Englands.
Hjá BÍ/Bolungarvík á Calvin að fylla skarð Hafsteins Helgasonar sem fór frá félaginu í haust til að taka við þjálfun hjá uppeldisfélagi sínu Reyni í Sandgerði.

Heimild: Heimasíða BÍ/Bolungarvíkur