06.01.15 - 17:09
Elvar Geir Magnússon
Mark Schwarzer frá Chelsea til Leicester (Staðfest)

Mark Schwarzer er elsti leikmaður sem spilað hefur fyrir Chelsea.

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Mark Schwarzer hefur yfirgefið Chelsea en hann hefur verið hjá félaginu síðan 2013. Hann lék 12 leiki á síðasta tímabili eftir meiðsli Petr Cech.
Á yfirstandandi tímabili hefur Thibaut Courtois hinsvegar verið aðalmarkvörður með Cech sem varamarkvörð og Schwarzer ekkert komið við sögu.

Schwarzer er 42 ára og hefur skrifað undir 18 mánaða samning við Leicester sem er í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Aðalmarkvörður Leicester, Kasper Schmeichel, fótbrotnaði og spilar ekki næstu vikurnar en Ben Hamer varamarkvörður hefur staðið í rammanum í hans stað.
Í kjölfar þessara frétta snýr hinn 21 árs Jamal Blackman aftur til Chelsea eftir lánsdvöl hjá Middlesbrough en hann verður þriðji markvörður bláliða.