06.01.15 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Mauro Zarate til QPR (Staðfest)

Zarate í leik með West Ham.

Mynd: Getty Images

Zarate í leik með West Ham.

Mynd: Getty Images
QPR hefur fengið framherjann Mauro Zarate í sínar raðir á láni frá West Ham.
Lánssamningurinn gildir út þetta tímabil.

Zarate hefur skorað tvö mörk í átta leikjum fyrir West Ham á leiktíðinni eftir að hafa komið til liðsins frá Velez Sarsfield í sumar.
Undanfarið hefur Zarate ekki verið í myndinni hjá Sam Allardyce, stjóra West Ham, og því fékk hann að róa á önnur mið.
Zarate mun reyna að hjálpa QPR í fallbaráttunni sem er framundan en Charlie Austin hefur nánast þurft að sjá einn um markaskorun á þeim bænum á þessu tímabili.