06.01.15 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
West Ham missir Song og Zarate (Staðfest)

Song hefur ekki fengið að spila síðan hann var rekinn útaf gegn Króatíu.

Mynd: Getty Images

Mauro Zarate er kominn til QPR á láni út tímabilið eftir að Sam Allardyce, stjóri West Ham, sagði argentínska sóknarmanninn ekki nægilega góðan fyrir félagið.
Miðjumaðurinn Alex Song hefur aftur á móti verið einn besti leikmaður liðsins á tímabilinu en verður ekki með fyrr en í fyrsta lagi í lok janúar.

West Ham missir því þrjá lykilmenn sína í janúar þar sem þeir keppa á Afríkumótinu, tveir með Senegal og Song leikur með Kamerún.
Song var ekki í upprunalegum hóp Kamerúna enda hefur hann ekki fengið að spila landsleik síðan hann var rekinn af velli gegn Króatíu á HM í sumar.
Miðjumaðurinn hefur þó verið einn af þeim bestu í ensku Úrvalsdeildinni þetta tímabilið og ákvað Robert Finke, landsliðsþjálfari Kamerún, að fá Song í landsliðið í stað Stephane Mbía sem missir af mótinu vegna meiðsla.
Cheickou Kouyate og Diafra Sakho hafa verið mjög góðir á tímabilinu en fara báðir með senegalska landsliðinu á mótið.
Riðlakeppni Afríkumótsins er búin undir lok janúar þannig að Afríkufararnir missa af minnst tveimur leikjum, en gætu misst af allt að fimm leikjum.