Fotbolti.net
06.01.21 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hörður Sveins samdi fyrst sem leikmaður og svo sem styrktaraðili

Hörður Sveins samdi fyrst sem leikmaður og svo sem styrktaraðili
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn 37 ára gamli Hörður Sveinsson, goðsögn í Keflavík og fyrrum leikmaður Vals, hefur spilað með Reyni Sandgerði í neðri deildum íslenska boltans undanfarin ár.
Auk þess að vera leikmaður Reynis er Hörður Sveins sölu- og markaðsstjóri Nýfisks. Skömmu fyrir áramót undirritaði hann nýjan styrktar- og samstarfssamning við knattspyrnudeild Reynis sem gildir til ársloka 2023.

Nýfiskur verður þar með áfram einn af aðalstyrktaraðilum Reynis og mun merki þeirra prýða búninga meistaraflokks karla líkt og undanfarin ár.

„Stuðningur Nýfisks er gríðarlega mikilvægur til að viðhalda þeirri góðu umgjörð sem byggst hefur upp í kringum starf knattspyrnudeilarinnar á nýliðnum árum," segir í færslu á Facebook síðu Reynis.

„Stjórn ksd. Reynis er ákaflega þakklát fyrir stuðning Nýfisks og hlakkar til samstarfsins."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.