06.02.15 - 19:45
Brynjar Ingi Erluson
Arnar Bragi Bergsson í GAIS (Staðfest)

Arnar Bragi Bergsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Bragi Bergsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Bragi Bergsson, sem leikið hefur með ÍBV undanfarin tvö tímabil, er búinn að skrifa undir samning við GAIS í sænsku fyrstu deildinni en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Arnar Bragi, sem er 21 árs gamall, er uppalinn í Svíþjóð en hann lék upp alla yngri flokka með Västra Frölunda áður en hann samdi aðeins 17 ára gamall við IFK Göteborg.
Hann var afar öflugur með liðinu og var meðal annars fyrirliði U19 ára liðsins áður en hann kom til Íslands og samdi við ÍBV.
Hann spilaði tvö tímabil með ÍBV en hann var samningslaus eftir síðasta tímabil. Hann hefur æft með GAIS í sænsku fyrstu deildinni að undanförnu og ákvað félagið í kjölfarið að semja við hann.
,,GAIS er mjög flottur klúbbur þar sem vel er haldið um hlutina og svo hafa allir tekið vel á móti mér frá því ég kom,\" sagði hann við heimasíðu félagsins.
Svíarnir þekkja Arnar Braga betur sem Braga Bergsson en hann á að baki 11 leiki og 1 mark fyrir yngri landslið Íslands.